Jæja ég er búin að taka þá ákvörðun að reyna að fara að blogga eitthvað því að mér fannst tími til kominn því ég hef ekkert bloggað síðan í september 2006 og það er orðið frekar langt síðan……
En af mér er nú allt það besta að frétta… ég er byrjuð í skóla og ákvað að klára hárgreiðsluna(tími til komin eftir 10 ár)…….Ég var nú orðin frekar stressuð að fara að setjast aftur á skólabekkinn en þetta er allt öðruvísi en ég hélt… þetta er bara eins og að fara að vinna því að við erum að taka módel og vinnum bara eins og í vinnunni í flestum tímum en svo er auðvitað verið að kenna okkur ýmislegt….en þetta er rosa gaman….. en vá hvað mér fannst erfitt fyrstu vikuna því að mér fannst ég vera bara alein í heiminum þekkti engann og var eins og fáviti en svo er þetta fínn hópur allir voða hressir og skemmtilegir…….:) ég ætla að segja þetta gott núna í bili og ætla að reyna að fara að standa mig í þessu bloggi….
Bið að heilsa ykkur í bili
Guðrún Ósk