blogga blogga blogga

Jæja ég er búin að taka þá ákvörðun að reyna að fara að blogga eitthvað því að mér fannst tími til kominn því ég hef ekkert bloggað síðan í september 2006 og það er orðið frekar langt síðan……

En af mér er nú allt það besta að frétta… ég er byrjuð í skóla og ákvað að klára hárgreiðsluna(tími til komin eftir 10 ár)…….Ég var nú orðin frekar stressuð að fara að setjast aftur á skólabekkinn en þetta er allt öðruvísi en ég hélt… þetta er bara eins og að fara að vinna því að við erum að taka módel og vinnum bara eins og í vinnunni í flestum tímum en svo er auðvitað verið að kenna okkur ýmislegt….en þetta er rosa gaman….. en vá hvað mér fannst erfitt fyrstu vikuna því að mér fannst ég vera bara alein í heiminum þekkti engann og var eins og fáviti en svo er þetta fínn hópur allir voða hressir og skemmtilegir…….:)  ég ætla að segja þetta gott núna í bili og ætla að reyna að fara að standa mig í þessu bloggi….

Bið að heilsa ykkur í bili

Guðrún Ósk

4 Ummæli »

  1. Heiða Rafnsdóttir Sagði:

    Blessuð verð daglegur gestur þannig að þú verður að vera dugleg að blogga…. hehehe
    Heiða

  2. Linda Sagði:

    Ja hérna.. detti mér nú allar dauðar og það allt.. Sys byrjuð að blogga aftur..
    Gaman að því og hlakka til að fá reglulegar fréttir úr Sandgerðinni, sérstaklega þar sem foreldrarnir eru fluttir í annað bæjarfélag.. Aftur!!!!

    Hlýjar kveðjur yfir hafið..
    Linda

  3. gudosk Sagði:

    Já stelpur þið verðið að vera daglegir gestir því að Guddan ætlar að vera ógó dugleg að blogga……..

  4. Ásdís Sagði:

    Djöfuls dugnaður í þér kjella;)


{ RSS feed for comments on this post} · { TrackBack URI }

Rita ummæli