Vááá hvað ég er södd maður það er valla að ég geti skrifað…. eldaði semsagt læri í kvöld og var með matargesti, við kallinn buðum Hansa, Guggu og tvibbunum yfir í mat og ís á eftir…..maður virðist aldrei ætla að læra að borða minni og líða vel á eftir heldur étur maður sig alltaf pakkaðann að maður getur varla hreyft sig á eftir, en ég segji það ekki að það er voðalega notalegt að vera búin að éta yfir sig fá sér eina að reykja og leggjast svo fyrir framan imbann og tala nú ekki um þegar Denny Crane er á skjánum…..bíð spennt eftir að kl slái hálf 10….
En yfir í allt aðra sálma Guddunni datt sem sagt í hug að verða ljóshærð þegar hún mundi gifti sig(sem gerist 21. Júní 2008) og lét verða af því á fimmtudaginn í síðustu viku og er sem sagt búin að vera mikil meðferð á hárinu en það byrjaði þannig að ég varð APPELSÍNUGUL gjörsamlega eins og Appelsíndós bara fyndið…..en það varð til þess að ég fór ekki í skólann á mánudeginum á eftir því að ég gat ekki hugsað mér að vera að læra hárgreiðslu í skóla og mæta eins og FRÍK í tíma….En ég er nú orðin betri núna smá pissugul og smá hvít……þetta kemur sem sagt allt með tímanum. Svo er bara spurning hvort maður tolli fram í júní að vera ljóshærður en það sakar ekki að reyna……
blessó í bili
Gudda Gula
Linda Sagði:
on febrúar 4, 2008 at 7:47 pm
Áttu nokkuð mynd af þér pissugulri, mér myndi líða aðeins betur að sjá að fleiri en ég eru með herfilegan haus!!!
Annars er ég alveg sammála, maður virðist aldrei læra að borða nóg, heldur étur maður alltaf svo mikið að það er varla að maður nenni að anda..
Hlakka til að sjá þig í sumar.. ljóshærða í brúðarkjól..
Alianorah Sagði:
on febrúar 21, 2008 at 4:09 pm
Se tu capisci l’italiano come io capisco l’islandese, credo che tra noi non si potrà mai aprire un valido canale di comunicazione. Saluti dall’Italia