Archive for febrúar 6, 2008

Eintóm hamingja….

Jæja ég vill nú byrja á því að óska Lindu Systir og Clarence til hamingju með stóru fréttirnar………. málið er það að þau eru búin að vera að standa í ættleiðingu frá Guatamala þegar þau fengu staðfest að þau fengju þennann prins sem þau völdu var hann sem sagt um mánaða gamall en er núna á morgun 10 mánaða og þau ekki enþá búin að fá hann en þau eru búin að vera í síðasta ferlinu(PGN) í þessum pakka síðan í október og búið að henda þeim út 3 svar sinnum en svo í gær komu líka þessar frábæru fréttir að þau eru komin út úr PGN og prinsinn er að fara að koma heim til mömmu sinn og pabba og þvílík spenna og gleði tár og læti í gær allir í skýjunum með þetta svo ég vill bara óska þeim en og aftur til hamingju(en þetta er nú bara sagt í stuttu formi ætla nú ekki að fara að fara yfir alla síðustu mánuði)……

En annað Öskudagur í dag og þvílík spenna fyrir þessum degi hjá börnunum….mín eru búin að vera svo spennt alla síðustu viku og þessa að í morgun þegar þau voru vakinn þá bara skutust þau framúr eins og þau hefðu aldrei sofnað í gær því það var svo mikið sport að fara framúr og fara í búningana…….Ársæll er gladiator og María Rós er kúrekastelpa… þau eru rosa flott…..

Mætti í skólann í morgun alveg tilbúin að takast á við daginn og vera í skólanum til 4 í dag eins og alla aðra miðvikudaga…..sem sagt mætti í Iðnfræði í morgun kl 8 og á að vera þar til kl.12:20 en Gréta(kennari) hleypti okkur úr tímanum kl 10:10 svo þá erum við að tala um eyðu þar til kl. 2:30 í dag til að fara í öryggisfræði….. en nei ég hékk samt í skólanum til að verða 1/2 12 því að ég hafði ekki samvisku í að skrópa í tíma….. þannig að ég hringdi í múttu til að fá pepp um það að koma mér bara heim….svo Guddan dreif sig bara heim og ætla að eyða deginum í að vera með börnunum mínum á þessum skemmtilega degi. En fyndið hvað maður þarf alltaf að fá samþykki annars staðar frá til að geta tekið ákvörðun eða er það bara ég sem er svona skrítinn…;)..

jæja kveð ykkur í bili

Guðrún Ósk