Jæja Guddan hér…. ég sem ætlaði að vera svo dugleg að blogga en ég þarf að venjast þessu þetta kemur allt hjá mér sko…..:)
En já af mér er nú allt gott að frétta en eitt verð ég nú að segja ykkur ég skrapp á smá jamm sem sagt á laugardaginn 16 febrúar síðastliðinn sem er nú varla frásögu færandi en alla veg þá dró ég Siggu Maggý með mér og það ekki átakalaust því að hún var nú ekki alveg að nenna en dröslaðist nú með mér(og varð dauðadr…..heheh) en já við skruooum í keflavíkina til að dansa aðeins og hafa gaman en Guddann hitti þar strák sem hún kannast við og fer að kjafta við hann um allt og ekkert en þegar við skiljumst að og ég segji við hann “jæja gaman að sjá þig bið að heilsa” snýr Guðrún sér við og BOMM kýld í andlitið og hún varð svo brjáluð að ég veit þið trúið því ekki hversu reið ÉG varð en allavega ég rétt náði að slá í hnakkann á henni og hún snéri sér svo snöggt við að hún kýldi mig aftur……og vitir menn þetta var kelling stráksins sem ég var að tala við…….En þetta er strákur sem ég þekki svona lala og Bjössi þekkir líka þannig að það er nú ekki eins og hann eða ég höfum verið eitthvað utan í hvort öðru……hvað er málið með heiminn í dag maður má ekki skreppa á smá jamm þá er maður bara í stórHÆTTU. Ég held að ég hafi aldrei verið eins hneiksluð á ævi minn og pælið í því (þið sem þekkið mig) að ég var ekki einu sinni að rífa kjaft þannig að fólk er orðið sjúkt í dag…….En á sunnudeginum þá hringdi símin hjá mér um 5 leytið og Haldiði að það hafi ekki verið gellan að hringja og biðjast afsökunar á þessu og skildi bara ekkert í því hvað hún var að hugsa því að hún þekkti mig ekki einusinni og vissi ekkert hver ég væri….og sagðist hafa verið búin að drekka svo mikið…..Hallóóó er ekki í lagi komdu nú með betri afsakanir en þetta…..svo segir hún við mig að hún væri búin að vera að drepast úr móral allan daginn yfir þessu og ég sagði nú við hana að ég héldi nú að það væri í lagi…….En burt sé frá því að hún hafi hringt í mig og beðist afsökunar að þá var ég búin að heyra að þessi stelpa væri rugluð en eftir þetta þá heyrði ég enþá meira af henni og meira að segja áður en fólk vissi að hún hefði ráðist á mig en þá stundar gellan þetta bara um helgar að ráðast á fólk sem talar við gæjann hennar og bara liggur við bara til að berja það………en nóg af því….
annars er nú lítið annað að frétta af mér en fyndið…ég virðist vera búin að eignast nýja vini á bloggsíðunni minni einhverja ítali það eru 2 búnir að skrifa í comments og ég kíkti á síðurnar hjá þér og annar var búin að setja síðuna mína inn á blogg hjá sér….ég er nú svoldið forvitinn hvað hann er að tala um þar sem síðan mín kemur fyrir og hvað þeir eru að segja á commentinu mínu þannig að ef það er einhver sem skilur ítölsku og les þessa síðu þá endilega láttu mig vita hvað stendur því að ég er að drepast úr forvitni……en fyrir utan það þá á fólk að skrifa ensku ef það getur ekki skrifað á íslensku……..
jæja heyri í ykkur seinna…